top of page

A material history of 15th-17th century paper used for
Icelandic handwritten and printed texts from
production to use and reuse

Search


Pappír, kaþólskur biskup og lútherskur eftirmaður hans
20. júní 2021 Silvia Hufnagel Vaxandi pappírsnotkun á Íslandi er nátengd störfum nokkurra biskupa. Í þessari færslu ætla ég að einbeita mér að tveimur Skálholtsbiskupum, Ögmundi Pálssyni, síðasta kaþólska biskupinum í Skálholti, og hinum lútherska eftirmanni hans, Gissuri Einarssyni. Ögmundur Pálsson (um 1465-1541) fór til náms í Englandi og Hollandi áður en hann var vígður prestur í Skálholti 1499. Frá 1499 til að minnsta kosti 1508 var hann einnig skipstjóri á skipi biskups
Silvia Hufnagel
Feb 63 min read


Vatnsmerki og tónlist
Silvia Hufnagel 25. maí 2021 21. til 22. maí síðastliðinn tók ég þátt í og flutti erindi á netráðstefnunni Wasserzeichen und Musikwissenschaft - eða Vatnsmerki og tónlistarfræði sem skipulögð var af Ríkisbókasafninu í Bæjaralandi í München í Þýskalandi. Þótt flestir þátttakendur ráðstefnunnar hafi veirð tónlistarfræðingar var þar spennandi samansafn sérfræðinga úr ýmsum greinum, til að mynda forvörslu og gagnagreiningu. Nokkur atriði fönguðu athygli mína. Það voru auðvitað
Silvia Hufnagel
Feb 61 min read


Týndar bækur
Silvia Hufnagel 20. apríl 2021 Á nýlegri netráðstefnu um umhirðu og forvörslu handrita ( Care and Conservation of Manuscripts 18 ) flutti samstarfsmaður minn, Guðvarður Már Gunnlaugsson, fyrirlestur um týnd íslensk handrit úr safni Árna Magnússonar. Nokkur handrit voru skráð í safnskrá hans á einhverjum tímapunkti eða rannsökuð við undirbúning útgáfu en týndust svo. Hægt er að setja saman áþekkan lista um týndar pappírsbækur eða handrit sem skráð hafa verið í máldaga íslenskr
Silvia Hufnagel
Feb 62 min read


Hvenær varð pappír algengur?
16. mars 2021 Silvia Hufnagel Á okkar dögum er pappír að finna út um allt. En hvenær varð hann algengur á Íslandi? Elstu varðveittu pappírsbrot og heimildir um notkun pappírs eru frá því upp úr 1420 (eins og rætt hefur verið um í fyrri bloggfærslum, svo sem hér og hér ) en það tók langan tíma fyrir hann að komast í almenna notkun. Pieter Breughel yngri, Þorpslögfræðingurinn eða skattheimtuskrifstofan Þegar kemur að fornbréfum fór pappír að koma í stað bókfells upp úr 1540 ei
Silvia Hufnagel
Feb 62 min read


Endurvinnsla pappírs og bókfells
Silvia Hufnagel 15. febrúar 2021 Pappír árnýaldar var gerður úr tuskum, eins og fjallað var um í síðustu bloggfærslu, og var þannig sannkölluð endurvinnsluafurð. Þótt orðið endurvinnsla hafi nú ekki verið til á þeim tíma var algengt og viðtekið að endurnýta og endurnota alla hluti. Föt voru stöguð og bætt, gengu manna á milli og voru jafnvel klippt upp til þess að nota í önnur föt. Þegar þau urðu endanlega ónothæf sem föt urðu þau hráefni fyrir pappírsgerð. Og þegar búið var
Silvia Hufnagel
Feb 62 min read


Hráefni pappírsgerðarinnar
Silvia Hufnagel 15. janúar 2021 Ég var einu sinni spurð hvers vegna það hefðu ekki verið neinar pappírsmyllur á Íslandi. Ég fór að útskýra að hér hefði varla nokkur klæðnaður úr líni legið á lausu, að árnar hér væru ýmist of grunnar eða of straumþungar til þess að knýja pappírsmyllu, að hér hafi hvorki verið til staðar nauðsynleg þekking til starfseminnar né fjármagn til þess að setja hana á fót. Spyrjandanum var dálítið brugðið og svaraði: „Nú, svo það var ekki vegna þess að
Silvia Hufnagel
Feb 62 min read


Cartapesta í Kaupangi
Silvia Hufnagel 15. desember 2020 Í desember færir Hringrás pappírs ykkur sérstaka gjöf: Trúarlega lágmynd sem sýnir vitringana þrjá vitja Jesúbarnsins. Vitringarnir eru komnir til Betlehem og færa Jesú og foreldrum hans, Maríu og Jósef, gjafir. Þessi mynd er máluð og með gyllingu og málin á henni eru 20 x 22,4. 4,5 sentimetrar. Hún var búin til við efri hluta Rínarfljóts í Þýskalandi um 1470-1480 en er nú varðveitt í Metropolitan-safninu í New York. Takið eftir smáatriðunum,
Silvia Hufnagel
Feb 62 min read


Hvernig hefurðu það?
Silvia Hufnagel 13. nóvember 2020 Hvernig hefur þú það? Segðu það með handritum - á föstudaginn 13. sem einnig er afmælisdagur Árna Magnússonar. Hipp hipp húrra! a) Frábært b) Sjóðandi c) Skínandi d) Ekki sem verst e) Ekki í vinnunni í dag f) Ég á ekki heima hér g) Úff h) Rétt lafi i) Kálaðu mér bara Handritin sem notuð eru (ljósmyndir Silvía Hufnagel): a) GKS 3274 b (1649, Þórður Henriksson) 40v. b) AM 622 4to (1594) 81v. c) GKS 1318 fol (seinni
Silvia Hufnagel
Feb 61 min read


Geymsla bóka á Íslandi
Silvia Hufnagel 20. október 2020 Bókageymsla í nútímanum (c) Silvia Hufnagel Innblásin af nýlegum þráðum á Twitter ákvað ég að gera stutta könnun á geymslu bóka. Í klaustrum á meginlandinu voru bækur oft geymdar í litlum hólfum í klausturveggjunum. Dýrmætar bækur voru geymdar í skrúðhúsinu og bækur sem notaðar voru daglega voru geymdar á notkunarstað. Þegar fjöldi bókanna varð of mikill fyrir litlu geymsluhólfin í klaustrunum var viðbótarpláss eða jafnvel heilt herbergi lagt
Silvia Hufnagel
Feb 62 min read


Eldur og pappír
Silvia Hufnagel 21. september 2020 Við erum snúin aftur eftir sumarleyfi og vonum að þið séuð öll örugg á tíma faraldurs, félagslegra uppþota og eldsumbrota. Kirkjan að Kaupangri sem Sveinbjörn Jónsson byggði 1922. Eldur er ógn sem valdið hefur mikilli eyðilegginu í íslenskri menningarsögu. Ef til vill kannist þið við eldsvoðann sem eyddi stórum hluta handrita- og bókasafns Árna Magnússonar í Kaupmannahöfn 1728. Hlutar biskupsstólanna í Skálholti og á Hólum fuðruðu upp í eldi
Silvia Hufnagel
Feb 62 min read


Skjaldarmerki í vatnsmerkjum - og gleðilegan þjóðhátíðardag!
Silvia Hufnagel 17. júní 2020 Skjaldarmerki voru vinsæl mótíf í vatnsmerkjum og þau er oft að finna í pappír íslenskra skjala og handrita. Til að fagna þjóðhátíðardegi Íslendinga 17. júní langar mig að segja frá vatnsmerki sem minnir á íslenskt skjaldarmerki og er að finna í AM 700 b 4to, handriti sem tímasett er um 1600. Vatnsmerkið sem hér um ræðir er af stórum skildi með brún inni í tvöföldum hring með áletruninni BVDISSEN . Þetta vatnsmerki var notað í pappírsmyllu í Baut
Silvia Hufnagel
Feb 61 min read


Finnið villurnar - lausn
Silvia Hufnagel 15. maí 2020 Auðvelt : AM 158 fol, bl. 132v og AM 268 fol, 72r ( ólík vatnsmerki) Þessar myndir eru af ólíkum vatnsmerkjum þótt þær séu af sömu tegund, þ.e. bæði vatnsmerki eru byggingar með tveimur turnum og málmhliði sem rennt er fyrir dyraop. Annað þeirra er þó með tveimur gluggum og bókstafnum L fyrir neðan en hitt er með tveimur gluggum, nokkru sem virðist vera köngull eða hneta (en við nánari skoðun kemur í ljós að er skjaldarmerki) og bókstafnum L fyrir
Silvia Hufnagel
Feb 63 min read


Finnið villurnar
Silvia Hufnagel 10. apríl 2020 Kæru lesendur, Ég vona að allir séu heilir heilsu á tímum einangrunar og heimaskrifstofa. Þar sem mörg okkar geta ekki verið án hefðbundinnar páskaeggjaleitar hef ég útbúið innanhússleik fyrir ykkur. Finnið villurnar í vatnsmerkjunum! Hvað aðgreinir myndapörin? Þetta er vettvangsrannsókn á sviði vatnsmerkja. Góða skemmtun og gleðilega páska! Auðvelt: AM 158 fol, bl. 132v AM 268 fol, bl. 72r Erfitt: AM 158 fol, bl. 20r AM 158 fol, bl. 19r Mjög er
Silvia Hufnagel
Feb 61 min read


Þvoið ykkur um hendurnar!
Silvia Hufnagel 13. mars 2020 Handþvottur er hið nýja boðorð um allan heim og það með réttu, enda hindrar handþvotturinn útbreiðslu kórónuveirunnar SARS-CoV-2. Að þvo hendurnar hefur sem betur fer orðið almenn regla þegar unnið er með handrit og fágætar bækur. Á Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum í Reykjavík, þar sem Hringrás pappírsins hefur aðsetur sitt, er handþvotturinn fremst í leiðbeiningum um meðhöndlun handrita. “Þvoið ykkur vel um hendur með sápu” ( hér má s
Silvia Hufnagel
Feb 62 min read


Drekahali
Silvia Hufnagel 20. febrúar 2020 Fyrir ári skrifaði ég um elstu pappírskjölin og handritin sem fundist hafa á Íslandi og í þessari færslu ætla ég að segja frá vatnsmerkinu sem ég fann í elsta íslenska skjalinu. AM Dipl. Isl. Fasc. X, 6: litrófsmynd af hluta úr vatnsmerki af dreka (c) Hringrás pappírs Fornbréfið AM Dipl. Isl. Fasc. X, 6 hefur að geyma jarðakaupasamning. Höfðinginn Þorðvarður Loptsson ríki (um. 1410-1446) seldi Gunnsteini Jónssyni bæinn Leyning í Eyjafjarðarsý
Silvia Hufnagel
Feb 62 min read


Kraftatól fyrir pappírssagnfræðinga
Silvia Hufnagel 15. janúar 2020 Fyrir pappírsrannsakendur með áhuga á vatnsmerkjum er til fjöldi vefgátta, gagnagrunna og forrita sem eru (eða verða vonandi) ómissandi í rannsóknum okkar. Við skulum hringja inn nýja árið með því að kynnast þremur þeirra. Bjalla úr safni Piccards til þess að hringja inn nýja árið. Einn umfangsmesti gagnagrunnur vatnsmerkja sem til er í bókinni Die Wasserzeichenkartei im Haumptstaatsarchiv Stuttgart , sem gjarnan er kölluð „Findbücher“, en efn
Silvia Hufnagel
Feb 62 min read


Af köttum og tilviljunum
Silvia Hufnagel 16. desember 2019 Æðsta markmið flestra fræðimanna og vísindamanna er að gera miklar uppgötvanir. Leiðin að slíkum uppgötvunum getur verið margvísleg. Stundum eru þær rökrænar og óhjákvæmilegar niðurstöður vandvirknislegra rannsókna, en stundum koma þær til okkar óvænt eftir langar og nákvæmar lærdómsiðkanir þegar við erum að gera eitthvað allt annað (að fara í sturtu virðist klassískt dæmi) og stundum eru þær ánægjulegar tilviljanir. Ein af ánægjulegustu tilv
Silvia Hufnagel
Feb 62 min read


Vatnsmerki um víða veröld
Silvia Hufnagel 20. nóvember 2019 Nýlega tókum við í Hringrás Pappírs á Íslandi þátt í ráðstefnu í Cork á Írlandi. Sérfræðingar í vatnsmerkjum komu saman frá 16. til 18. október 2019 á fimmtu alþjóðlegu ráðstefnunni um vatnsmerki í stafrænum söfnum. Í þessari færslu ætla ég að nýta tækifærið og kynna sum af hinum spennandi verkefnum sem við fræddumst um í Cork. Marsh's Library, Dublin (c) Silvia Hufnagel Louise O’Connor frá Landsbókasafni Írlands í Dyflinni og gestgjafi okka
Silvia Hufnagel
Feb 62 min read


Dæmið bókina af kápunni!
15. október 2019 Silvia Hufnagel Í september tókum við í Hringrás pappírs á Íslandi þátt í Ligatus-sumarskólanum í evrópsku bókbandi, sem haldinn var í Austurríki af hinum mikilvirka Nicholas Pickwoad. Nicholas Pickwoad í klausturbókasafninu í Kremsmünster í Austurríki (c) Silvia Hufnagel Nicholas Pickwoad gaf okkur yfirsýn yfir hinar margvíslegu bókbandsaðferðir í Evrópu frá síðmiðöldum og þangað til eftir iðnbyltingu. Við lærðum um hvernig bækurnar voru saumaðar eða límda
Silvia Hufnagel
Feb 62 min read


Aftur á skólabekk: Pappírsaðföng á Íslandi árnýaldar
Silvia Hufnagel 13. september 2019 Í ágúst og byrjun september byrja skólarnir aftur og við fáum yfir okkur flóðbylgju auglýsinga fyrir skólavörur. Við þurfum aðeins að taka innkaupalistann sem skólinn sendir okkur í upphafi skólaársins og skreppa með hann í eina af búðunum eða stórmörkuðunum í nágrenninu til að kaupa það sem þarf. En á Íslandi árnýaldar var annað uppi á teningnum. Í tengslum við konungstilskipun um siðaskiptin skipaði höfuðsmaðurinn á Íslandi, Poul Huitfeldt
Silvia Hufnagel
Feb 62 min read
bottom of page
