top of page

Eldur og pappír

  • Writer: Silvia Hufnagel
    Silvia Hufnagel
  • Feb 6
  • 2 min read

Silvia Hufnagel

21. september 2020


Við erum snúin aftur eftir sumarleyfi og vonum að þið séuð öll örugg á tíma faraldurs, félagslegra uppþota og eldsumbrota.


Kirkjan að Kaupangri sem Sveinbjörn Jónsson byggði 1922.
Kirkjan að Kaupangri sem Sveinbjörn Jónsson byggði 1922.

Eldur er ógn sem valdið hefur mikilli eyðilegginu í íslenskri menningarsögu. Ef til vill kannist þið við eldsvoðann sem eyddi stórum hluta handrita- og bókasafns Árna Magnússonar í Kaupmannahöfn 1728. Hlutar biskupsstólanna í Skálholti og á Hólum fuðruðu upp í eldi í gegnum aldirnar. Og lítil og tiltölulega óþekkt kirkja að Kaupangri í Eyjafirði brann til grunna einhvern tímann milli um 1450 og 1478. Endurbygging hennar afhjúpaði áhugaverðar pappírssögur.


Margrét Vigfúsdóttir (um 1406-1486), sem var áhrifakona og þekktur verkbeiðandi og eigandi handrita, lét endurreisa hana og innrétta upp á nýtt. Meðal munanna sem hún gaf kirkjunni eru „tabulum med pappir. iij pappirsblod“ - þ.e. altaristafla með pappír (hörðum pappa?), þrjú blöð af pappír, eftir því sem máldagi frá 1478 greinir frá. Pappírsblöðin þrjú voru að líkindum málverk eða jafnvel stök blöð með tréristum á. Ekki aðeins eru þetta einhver fyrstu varðveittu tilvísanirnar til pappírs á Íslandi, heldur vísa þær til pappírs sem ekki var notaður til þess að letra á hann texta.


Fylgist með fleiri spennandi uppgötvunum! Og farið varlega!


Frekar heimildir: 


Gunnar Kristjánsson, ed., Saga biskupsstólanna: Skálholt 950 ára – 2006 – Hólar 900 ára. Hólar: Bókaútgáfan Hólar, 2006.


Hans Jacob Orning, "The Truth of Tales: Fornaldarsögur as Sources of Contemporary History." In: The Legendary Legacy: Transmission and Reception of the "Fornaldarsögur Norðurlanda", edited by Matthew Driscoll, Silvia Hufnagel, Philip Lavender and Beeke Stegmann, 91-115. The Viking Collection 24. Odense: University Press of Southern Denmark, 2018.


Már Jónsson, Arnas Magnæus philologus (1663-1730). The Viking Collection 20. Odense: University Press of Southern Denmark, 2012.

[1] Jón Sigurðsson, Jón Þorkelsson, Páll Eggert Ólason and Björn Þorsteinsson, eds., Diplomatarium islandicum. Íslenzkt fornbréfasafn; sem hefir inni að halda bréf og gjörninga, dóma og máldaga og aðrar skrár, er snerta Ísland eða íslenzka menn. 16 vols. Copenhagen: Hið íslenzka bókmenntafjelag, 1857-1972, vol. 5, 302, no. XLII.

Comments


  • Grey Twitter Icon
Icelandic Research Fund.jpg

SIGN UP FOR UPDATES,

POSTS AND NEWS

© 2022 by Life of Paper. Proudly created with Wix.com

bottom of page