top of page

Cartapesta í Kaupangi

  • Writer: Silvia Hufnagel
    Silvia Hufnagel
  • Feb 6
  • 2 min read

Silvia Hufnagel

15. desember 2020


Í desember færir Hringrás pappírs ykkur sérstaka gjöf: Trúarlega lágmynd sem sýnir vitringana þrjá vitja Jesúbarnsins. Vitringarnir eru komnir til Betlehem og færa Jesú og foreldrum hans, Maríu og Jósef, gjafir. Þessi mynd er máluð og með gyllingu og málin á henni eru 20 x 22,4. 4,5 sentimetrar. Hún var búin til við efri hluta Rínarfljóts í Þýskalandi um 1470-1480 en er nú varðveitt í Metropolitan-safninu í New York. Takið eftir smáatriðunum, gyllingunni, hvernig Jósef horfir á Jesús og hvernig Jesú grípur í hárið á einum vitringanna!


Hylling vitringanna (1470-1480, Þýskalandi) á Metropolitan-safninu í New York.
Hylling vitringanna (1470-1480, Þýskalandi) á Metropolitan-safninu í New York.

Nú mætti spyrja hvers vegna þessi mynd af heimsókn vitringanna tengist desemberfærslu bloggsíðu sem helguð er pappírshringrás á Íslandi, fyrir utan jólaþemað. Og svarið er að þetta tvennt virðist tengjast heilmikið!


Eitt af því áhugaverðasta við þessa lágmynd er að hún er gerð úr pappamassa – cartapesta. Þessi tækni var notuð að síðan á 13. öld hið minnsta og varð mjög vinsæl á árnýöld: Afgangspappír var blandað við kalk og bindiefni og kvoðan sem til varð svo pressuð inn í mót og annað hvort þurrkuð eða hituð áður en hún var svo máluð. Margar pappamassa-lágmyndir voru færðar yfir á viðarplötur og rammaðar inn. Þrátt fyrir miklar vinsældir á sinni tíð hafa fáar þeirra varðveist fram á okkar dag.


Eins og ég nefndi í september er eina af elstu rituðu tilvísununum til pappírs á Íslandi að finna í máldaga kirkjunnar í Kaupangi í Eyjafjarðarsveit frá 1478: Margrét Vigfúsdóttir (1406-1486) gaf, meðal annarra muna, „tabulum med pappir“ - þ.e. altaristöflu með eða gerða úr pappír. Ég hélt áður að þessi altaristafla gæti hafa verið styrkt með pappaspjaldi, en nú finnst mér mun líklegra að um hafi verið að ræða lágmynd úr pappamassa eins og þá sem geymd er á Metropolitan í New York.


Og með þessu óskar Hringrás pappírs á Íslandi ykkur gleðilegrar hátíðar og gæfuríks nýárs (Es kann nur besser werden…)!


Frekari heimildir:



Alexander Schnütgen, “Sieben Papiermachéreliefs des späten Mittelalters.“ Zeitschrift für christliche Kunst 23 (1910): 33-36.


Jón Sigurðsson, Jón Þorkelsson, Páll Eggert Ólason and Björn Þorsteinsson, eds., Diplomatarium islandicum. Íslenzkt fornbréfasafn; sem hefir inni að halda bréf og gjörninga, dóma og máldaga og aðrar skrár, er snerta Ísland eða íslenzka menn. 16 vols. Copenhagen: Hið íslenzka bókmenntafjelag, 1857-1972, vol. 5, 302, no. XLII.



Comments


  • Grey Twitter Icon
Icelandic Research Fund.jpg

SIGN UP FOR UPDATES,

POSTS AND NEWS

© 2022 by Life of Paper. Proudly created with Wix.com

bottom of page