Þvoið ykkur um hendurnar!
- Silvia Hufnagel
- Feb 6
- 2 min read
Silvia Hufnagel
13. mars 2020
Handþvottur er hið nýja boðorð um allan heim og það með réttu, enda hindrar handþvotturinn útbreiðslu kórónuveirunnar SARS-CoV-2.
Að þvo hendurnar hefur sem betur fer orðið almenn regla þegar unnið er með handrit og fágætar bækur. Á Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum í Reykjavík, þar sem Hringrás pappírsins hefur aðsetur sitt, er handþvotturinn fremst í leiðbeiningum um meðhöndlun handrita. “Þvoið ykkur vel um hendur með sápu” (hér má skoða leiðbeiningarnar). Og við erum auðvitað ekki ein um að leggja þetta til: Til dæmis biður hið fræga J. Paul Getty-safn í Kaliforníu gesti sína um að þvo sér um hendur áður en fágætir munir eru handleiknir (sjá kafla B, grein ii í leiðbeiningunum).
Að þvo sér um hendur áður en handrit og fágætir munir eru snertir getur komið í veg fyrir litabreytingar á mununum. Listsagnfræðingurinn og verkfræðingurinn Kathryn Rudy rannsakaði litabreytingar handrita með dökknunarmæli sem mælir endurvarp ljóss af fleti og þannig hve dökkur hann er að lit. Þótt dökknun síðna í handritum vegna slits sé oft sýnileg með berum augum, sérstaklega á neðri þriðjungi ytri spássía, þá gefur dökknunarmælirinn hlutlausari og mælanlegri niðurstöðu.
Önnur ástæða til þess að þvo sér um hendur áður en unnið er með handrit er að koma í veg fyrir hugsanleg áhrif örveru- eða bakteríuvirkni á handritin. Hér má lesa bloggfærslu um það mál sem skrifuð var í samstarfi við sérfræðing í fingrafaragreiningu, Terry Kent.
Ég mæli með því að hendur séu þvegnar bæði fyrir og eftir að handrit hafa verið handleikin. Hafið upplýsingarnar úr grein Kathryn Rudy í huga og sjáið óhreinindin á fingurgómun mínum eftir heilan dag við að fletta handritum.

So, please wash your hands! Wash them thoroughly and wash them with soap. For your sake, for the manuscripts’ sake, for all our sake! Thank you!
Frekari heimildir:
Cordelia Rogerson, Paul Garside, Sarah Hamlyn, and Terry Kent, “Fingerprints & their potential impact in relation to handling library collections” Blog entry 26 September 2016 British Library https://blogs.bl.uk/collectioncare/2016/09/fingerprints-their-potential-impact-in-relation-to-handling-library-collections.html
Kathryn M. Rudy, "Dirty Books: Quantifying Patterns of Use in Medieval Manuscripts Using a Densitometer," Journal of Historians of Netherlandish Art 2, issue 1-2 (Summer 2010) https://jhna.org/articles/dirty-books-quantifying-patterns-of-use-medieval-manuscripts-using-a-densitometer/





Comments