top of page

Vatnsmerki og tónlist

  • Writer: Silvia Hufnagel
    Silvia Hufnagel
  • Feb 6
  • 1 min read

Silvia Hufnagel

25. maí 2021


21. til 22. maí síðastliðinn tók ég þátt í og flutti erindi á netráðstefnunni Wasserzeichen und Musikwissenschaft - eða Vatnsmerki og tónlistarfræði sem skipulögð var af Ríkisbókasafninu í Bæjaralandi í München í Þýskalandi. Þótt flestir þátttakendur ráðstefnunnar hafi veirð tónlistarfræðingar var þar spennandi samansafn sérfræðinga úr ýmsum greinum, til að mynda forvörslu og gagnagreiningu. 


Nokkur atriði fönguðu athygli mína. Það voru auðvitað margar samsvaranir við vatnsmerkjarannsóknir í öðrum greinum: Rannsóknir á vatnsmerkjum hjálpa okkur að aldursgreina ódagsett gögn og auðvelda okkur að tímasetja verk innbyrðis – raða þeim í tímaröð og skilja þróun þeirra. Tónskáld notuðu gjarnan allan pappírinn sinn áður en þau keyptu nýjan pappír. Víða þar sem tónskáld bjuggu og störfuðu var völ á pappír frá ólíkum upprunastöðum. Og sum tónskáld notuðu sams konar pappír – Beethoven og Schubert, til dæmis. Þetta vekur spurninguna um hvort það hafi verið sérhæfðir pappírskaupmenn – veit einhver meira?


Varðandi tæknilegu hliðina á afritun vatnsmerkja, þá nota nokkrar stofnanir hitamyndavélar. Þær eru því miður dýrar og krefjast sérfræðiþekkingar við eftirvinnslu mynda en þær gefa skýrar niðurstöður. Þrátt fyrir það reynast gamlar teikningar og ljósmyndir af vatnsmerkjum enn gagnlegar við rannsóknir okkar.



Almenn niðurstaða ráðstefnunnar var að enn væri margt eftir ógert, mörgum spurningum enn ósvarað og öll vonumst við eftir tæknilegum framförum sem hjálpa okkur við að svara þeim. Fylgist með til að frétta af tæknilegum nýjungum og nýjum niðurstöðum!



Frekari heimildir:

Comments


  • Grey Twitter Icon
Icelandic Research Fund.jpg

SIGN UP FOR UPDATES,

POSTS AND NEWS

© 2022 by Life of Paper. Proudly created with Wix.com

bottom of page