top of page

Vatnsmerki um víða veröld

  • Writer: Silvia Hufnagel
    Silvia Hufnagel
  • Feb 6
  • 2 min read

Silvia Hufnagel

20. nóvember 2019


Nýlega tókum við í Hringrás Pappírs á Íslandi þátt í ráðstefnu í Cork á Írlandi. Sérfræðingar í vatnsmerkjum komu saman frá 16. til 18. október 2019 á fimmtu alþjóðlegu ráðstefnunni um vatnsmerki í stafrænum söfnum. Í þessari færslu ætla ég að nýta tækifærið og kynna sum af hinum spennandi verkefnum sem við fræddumst um í Cork. 



Marsh's Library, Dublin (c) Silvia Hufnagel
Marsh's Library, Dublin (c) Silvia Hufnagel

Louise O’Connor frá Landsbókasafni Írlands í Dyflinni og gestgjafi okkar Pádraig Ó Macháin frá University College í Cork skýrði hvers vegna pappír var nauðsynjavara í stjórnkerfi Dyflinnar á 16. og 17. öld. Pappír var gjarnan fluttur inn frá Frakklandi í gegnum Bristol og aðrar enskar hafnarborgir. En pappírskaupmenn nýttu líka beinar verslunarleiðir milli Frakklands og Írlands og franskur pappír finnst gjarnan í og við írska strandbæi og verslunarstaði.


Í Þýskalandi fara fram rannsóknir á tónlistarhandritum með aðstoð vatnsmerkja, og sögðu Veronika Giglberger og Bernhard Lutz frá Bæverska ríkisbókasafninu í Munchen frá þeim. Þar eru notaðar háþróaðar aðferðir þar sem hitamyndavél er er stillt upp á sérstakan hátt ásamt bókavöggu – þetta var mjög spennandi að sjá, ekki síst frá tæknilegu sjónarhorni.


Ivand Badanyak frá Króatísku sagnfræðistofnuninni (Croation Institute of History) í Zagreb vinnur að útgáfu að hinu geysimikla vatsnmerkjasafni Mošin og Traljić, sem verður hluti af Bernstein-vefgáttinni um minni pappírs. Þar sem safnið hefur að geyma þúsundir teikninga að vatnsmerkjum verður þessi útgáfa mikill hvalerki fyrir fræðasamfélagið.


Ilara Pastrolin frá École Nationale des Chartes í París sýndi okkur frumgerð smáforrits sem greinir vatnsmerki. Þessar frumniðurstöður eru mjög lofandi og ég hlakka ákaflega til frekari fregna.


Þá kynntu vatnsmerkjarannsóknir sínar fræðimenn frá Danmörku, Hollandi, Spáni, Grikklandi, Rússlandi, Póllandi og jafnvel Mexíkó - sem sýnir að vatnsmerkjasamfélagið er sannarlega alþjóðlegt. Við þökkum skipuleggjendum, þeim Pádraig Ó Macháin, Mariu Stieglecker og Emmanuel Wenger kærlega fyrir þessa frábæru og lærdómsríku ráðstefnu. Við þökkum líka Konunglegu írsku akademíunni, Marsh-bókasafninu og Chester Beatty-bókasafninu fyrir að bjóða okkur í heimsókn. 


Hægt er að finna dagskrá ráðstefnunnar og sum erindi hennar, auk ljósmynda sem teknar voru, hér:

Comments


  • Grey Twitter Icon
Icelandic Research Fund.jpg

SIGN UP FOR UPDATES,

POSTS AND NEWS

© 2022 by Life of Paper. Proudly created with Wix.com

bottom of page