top of page

Kraftatól fyrir pappírssagnfræðinga

  • Writer: Silvia Hufnagel
    Silvia Hufnagel
  • Feb 6
  • 2 min read

Silvia Hufnagel

15. janúar 2020


Fyrir pappírsrannsakendur með áhuga á vatnsmerkjum er til fjöldi vefgátta, gagnagrunna og forrita sem eru (eða verða vonandi) ómissandi í rannsóknum okkar. Við skulum hringja inn nýja árið með því að kynnast þremur þeirra. 



Bjalla úr safni Piccards til þess að hringja inn nýja árið.
Bjalla úr safni Piccards til þess að hringja inn nýja árið.

Einn umfangsmesti gagnagrunnur vatnsmerkja sem til er í bókinni Die Wasserzeichenkartei im Haumptstaatsarchiv Stuttgart, sem gjarnan er kölluð „Findbücher“, en efni hennar safnaði Gerhard Piccard saman og geymir hún myndir af nær fimm þúsund vatnsmerkjategundum með um fjörutíu og fimm þúsund einstökum vatnsmerkjum í sautján bindum (Stuttgart, 1961-1997). Vatnsmerkin eru flokkuð eftir mótífum og hvert bindi byrjar á landfræðilegri staðsetningu á uppruna hverrar tegundar vatnsmerkja ásamt tímasetningu fyrir einstök vatnsmerki.



Vefgáttin Bernstein: Minni pappírsins er einstök í sinni röð. Vefgáttin veitir aðgang að meira en kvartmilljón færslna um vatnsmerki, þar á meðal myndir úr Les Filigranes (1907), fjögurra binda vantmserkjasafni Carles-Moïse Briquet. Um helmingur færslnanna í Bernstein-gáttinni eiga uppruna sinn í WZIS, Wasserzeichen-Informationssystem, gagnagrunni sem geymir meðal annars vatnsmerkjamyndir Piccards. Bernstein býr einnig yfir verkfærum sem gera notendum kleift að snúa, spegla, ranghvolfa og mæla (o.s.frv.) vatnsmerkjamyndirnar. En það sem einna mestu máli skiptir er að hægt er að bera myndirnar saman við aðrar myndir. Þannig verður leitin að eins eða samskonar vatnsmerkjum mun auðveldari.


Þriðja kraftatólið er enn í þróun en mjög lofandi frumgerð er nú þegar aðgengileg: Filigranes pour tous - vatnsmerki fyrir alla, smáforrit fyrir tölvur og síma. Ef þú skannar vatnsmerkjamynd getur forritið borið kennsl á hana með því að bera það saman við aðrar myndir sem búið er að hlaða upp.


Í rannsóknarverkefninu Hringrás pappírs eru myndum af vatnsmerkjum úr íslenskum skjölum og handritum bætt við Wasserzeichen-Informationssystem, svo endilega skoðið gangagrunninn og fylgist með næstu bloggfærslu þar sem fjallað verður um vatnsmerkið í elsta íslenska pappírsskjalinu sem varðveitt er!


Hlekkir:


Comments


  • Grey Twitter Icon
Icelandic Research Fund.jpg

SIGN UP FOR UPDATES,

POSTS AND NEWS

© 2022 by Life of Paper. Proudly created with Wix.com

bottom of page