top of page

Endurvinnsla pappírs og bókfells

  • Writer: Silvia Hufnagel
    Silvia Hufnagel
  • Feb 6
  • 2 min read

Silvia Hufnagel

15. febrúar 2021


Pappír árnýaldar var gerður úr tuskum, eins og fjallað var um í síðustu bloggfærslu, og var þannig sannkölluð endurvinnsluafurð. Þótt orðið endurvinnsla hafi nú ekki verið til á þeim tíma var algengt og viðtekið að endurnýta og endurnota alla hluti. Föt voru stöguð og bætt, gengu manna á milli og voru jafnvel klippt upp til þess að nota í önnur föt. Þegar þau urðu endanlega ónothæf sem föt urðu þau hráefni fyrir pappírsgerð. Og þegar búið var að þróa tækni til að losa blek af blöðum árið 1774 varð pappírinn sjálfur hráefni í nýjan pappír. Áður en það gerðist, og raunar eftir það líka, var pappírinn notaður upp á nýtt í alls kyns hluti. Apótekarar, matvörukaupmenn, bókbindarar og fleiri keyptu afgangspappír til ýmissa nota. Hann var notaður sem einangrun inni í veggjum, salernispappír og umbúðir fyrir krydd, ost, fisk og franskar, og annan smávarning. Bókbindarar notuðu hann til að mynda  í saurblöð, spjöld og spjaldblöð, inn í kili, sem stoðseðla (e. guards) og fleira.


AM 666 b 4to (c) Árnasafnið í Kaupmannahöfn
AM 666 b 4to (c) Árnasafnið í Kaupmannahöfn

En pappírinn var ekki eini ritfangið sem var endurunnið á þennan hátt. Bókfellshandrit sem ekki voru lengur í notkun voru tekin í sundur og stök blöð þeirra eða tvinn notuð í bókband: í kili, stoðseðla og fleira.


Handrit frá kaþólskum tíma hlutu til dæmis gjarnan þessi örlög eftir menningarbyltingu siðaskiptanna sem meðal annars fól í sér upplausn klaustranna. Þau voru notuð sem salernispappír eða umbúðir, til þess að hreinsa skó, eða jafnvel sem fuglahræður, þau voru brúkuð til þess að þrífa byssur eða jafnvel loka bjórtunnum eins og Anna Reynolds hefur sýnt fram á.


Á Íslandi er mikið varðveitt af endurunnu bókfelli og pappírsblöðum. Oftast finnst þessi efniviður í kápum bókanna, í kjalstoðum, saurblöðum og spjaldblöðum. 


Til viðbótar finnast stundum endurunnin blöð á forvitnilegri stöðum. Bókfellsblað var til að mynda endurnýtt sem sigti. Bókfellið tengdist klæðaskurði líka, þar sem laus blöð voru notuð í fatnað. Frægt íslenskt dæmi er innleggið í biskupshúfu, nú AM 666 b 4to, og snið fyrir vesti og innlegg í skó, nú AM 122b fol. 


Ég hef ekki enn fundið upplýsingar um hvenær endurnýttur pappír varð algengur á íslandi og kynni vel að meta allar ábendingar!


Hvaða sérkennilega endurnýttu hluti úr pappír eða bókfelli hafið þið rekist á?


Frekari heimildir:


www.Handrit.is (accessed 15 February 2021)



Anna Reynolds, “ʻSuch dispersive scattredness’: Early Modern Encounters with Binding Waste.” Journal of the Northern Renaissance 8 (2017)



Matthew James Driscoll and Svanhildur Óskarsdóttir, 66 Manuscripts from the Arnamagnæan Collection. Copenhagen: Museum Tusculanum Press, 2015.

Comments


  • Grey Twitter Icon
Icelandic Research Fund.jpg

SIGN UP FOR UPDATES,

POSTS AND NEWS

© 2022 by Life of Paper. Proudly created with Wix.com

bottom of page