Hvenær varð pappír algengur?
- Silvia Hufnagel
- Feb 6
- 2 min read
16. mars 2021
Silvia Hufnagel
Á okkar dögum er pappír að finna út um allt. En hvenær varð hann algengur á Íslandi? Elstu varðveittu pappírsbrot og heimildir um notkun pappírs eru frá því upp úr 1420 (eins og rætt hefur verið um í fyrri bloggfærslum, svo sem hér og hér) en það tók langan tíma fyrir hann að komast í almenna notkun.

Þegar kemur að fornbréfum fór pappír að koma í stað bókfells upp úr 1540 eins og Arna Björk Stefánsdóttir sagnfræðingur hefur leitt líkur að. Pappírsnotkun við skjalagerð jókst á sjötta áratug sextándu aldar en nokkuð dró úr henni á áratugnum sem á eftir kom. Heimildir vísa til pappírsbréfa og afrita frá seinni hluta sextándu aldar en þau hafa ekki varðveist. Því miður ná útgáfur íslenskra fornbréfa ekki lengra en til 1570. Því vitum við ekki fyrir víst hvenær pappírinn velti bókfellinu úr sessi í fornbréfum.
Elsta varðveitta pappírshandritið er minnisbók Gissurar Einarssonar biskups, sem varðveitt er í Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum í Reykjavík undir safnmarkinu AM 232 8vo, en hún er frá um 1539-48, eða um það bil öld yngri en elsta pappírsfornbréfið. Frá því á seinni hluta sextándu aldar eykst fjöldi varðveittra pappírshandrita og um aldarlok er hann kominn fram úr fjölda varðveittra skinnhandrita. Það var þó ekki fyrr en á sautjándu öld sem pappírshandrit urðu allsráðandi.
Þótt pappírinn hafi borist fremur seint til Íslands var upptaka hans ekki endilega hægari en í öðrum löndum. Skoðum dæmi: Á Englandi kom pappírinn til sögunnar á þrettándu öld, hann var algengur í viðskiptum og konunglegum bréfaskriftum og með vaxandi hætti á lægri stjórnsýslustigum eftir því sem leið á fjórtándu öldina. Hann varð hins vegar ekki algengur í bókmenntalegum handritum fyrr en eftir 1400.
Önnur áhugaverð spurning í þessu samhengi er hve langur tími leið áður en pappír var endurnýttur. Fylgist með fyrir svör við því!
Frekari heimildir:
Arna Björk Stefánsdóttir, “Um upptöku pappírs á Íslandi á sextandu og sautjándu öld,” Sagnir 30 (2013): 226-236.
Orietta Da Rold, Paper in Medieval England: From Pulp to Fictions. Cambridge: Cambridge University Press, 2020.
Silvia Hufnagel, “Der Wechsel von Pergament und Wachstafeln zu Papier in Island im 15. und 16. Jahrhundert,“ Gutenberg-Jahrbuch 95 (2020): 176-191.





Comments