top of page

Finnið villurnar - lausn

  • Writer: Silvia Hufnagel
    Silvia Hufnagel
  • Feb 6
  • 3 min read

Silvia Hufnagel

15. maí 2020



Auðvelt:

AM 158 fol, bl. 132v og AM 268 fol, 72r (ólík vatnsmerki)
AM 158 fol, bl. 132v og AM 268 fol, 72r (ólík vatnsmerki)

Þessar myndir eru af ólíkum vatnsmerkjum þótt þær séu af sömu tegund, þ.e. bæði vatnsmerki eru byggingar með tveimur turnum og málmhliði sem rennt er fyrir dyraop. Annað þeirra er þó með tveimur gluggum og bókstafnum L fyrir neðan en hitt er með tveimur gluggum, nokkru sem virðist vera köngull eða hneta (en við nánari skoðun kemur í ljós að er skjaldarmerki) og bókstafnum L fyrir ofan hliðið en sól fyrir neðan - svo eitthvað sé nefnt.



Erfitt:

AM 158 fol, bl. 20r og AM 158 fol, bl. 19r (par)
AM 158 fol, bl. 20r og AM 158 fol, bl. 19r (par)

Þessar myndir sýna líklega vatnsmerkjapar. Takið eftir mismunandi staðsetningu bókstafsins H á keðjulínunni, örlítið beyglaðri hurðinni á vinstri turninum og mismunandi stærð glugganna næst rennihliðinu. Sérfræðingar á meðal ykkar gætu hafa tekið eftir því að þessar myndir eru teknar af samliggjandi blöðum í sama handriti, svo það er líklegt að vatnsmerkin séu par frekar en afbrigði hvort af öðru.


Vatnsmerkjapör verða til þegar tveir menn vinna samtímis með tvö pappírsmót (en aðeins einn ramma) við pappírsgerð. Annar dýfir mótinu með rammanum ofan í ker með vatni og trefjamauki og togar það svo upp úr og hristir lítið eitt til þess að dreifa jafnt úr maukinu. Svo tekur hann rammann burt og ýtir mótinu með pappírsmaukin á yfir grind eða planka til hins mannsins, þ.e. leggjarans (e. goucher). Eftir að umframvatnið hefur runnið af maukinu tekur leggjarinn mótið og þrýstir pappírsmaukinu ofan á lag af blautu filti eða þæfðu ullarefni (þetta ferli kallast að leggja (e. gouching)) og réttir fyrri manninum tómt mótið aftur. En í stað þess að bíða eftir að fá tóma mótið til baka nýtir pappírsgerðarmaðurinn rammann með öðru móti á meðan og tryggir þannig hámarksskilvirkni. Bæði mótin hafa vatnsmerki en af því að þau eru handgerð eru þau örlítið frábrugðin hvort öðru. Þessi litli munur er sjáanlegur í myndunum tveimur að ofan.


Mjög erfitt:

Lbs 6 fol., bl. 246r og Lbs 336 fol., bl. 5r-speglað (afbrigði)
Lbs 6 fol., bl. 246r og Lbs 336 fol., bl. 5r-speglað (afbrigði)



Hér gefur að líta tvö afbrigði af vatnsmerki. Toppurinn á þakinu í Lbs 6 fol er mjórri og L-ið neðst í merkinu er skakkara en í Lbs 336 fol, þótt báðar myndir sýni beygðar dyr og turna.

Afbrigði vatnsmerkja verða til vegna slits á mótunum. Pappírsmót voru nothæf frá einu ári til fjögurra ára og á þessum tíma tóku vatnsmerkin breytingum vegna álagsins á mótin, bæði vegna meðhöndlunar við pappírsgerðina og þrifa með bursta.


Hrikalega erfitt:

AM 270 fol., bl. 5v og AM 271 fol., bl. 12v (afbrigði)
AM 270 fol., bl. 5v og AM 271 fol., bl. 12v (afbrigði)


Hér má sjá afbrigði af einu vatnsmerki í tveimur ólíkum handritum. Takið eftir að kraginn er af sömu breidd og á sama stað í afstöðu við keðjulínur og að húfuformið er eins, en sjáið líka muninn í merkinu fyrir neðan dárahattinn. Að koma auga á þessi frávik er erfiðara vegna lakra gæða pappírsins sem gera vatnsmerkið óskýrt og vegna þess að blekið er enn sýnilegt á þessum myndum, sem teknar eru með baklýsingu og myndavél farsíma. Þessi vatnsmerki er að finna í tveimur handritum sem bæði eru bækur í bréfabókasafni Brynjólfs Sveinssonar biskups (1605-75). Með greiningu á dreifingu vatnsmerkjanna getum við öðlast dýrmæta innsýn inn í handritagerðina, pappírsnotkun og pappírsverslun. 



Frekar heimildir:

Sandra Schultz, Papierherstellung im deutschen Südwesten: Ein neues Gewerbe im späten Mittelalter. Materiale Textkulturen 18. Berlin: de Gruyter, 2018.


Dard Hunter, Papermaking: The History and Technique of an Ancient Craft. New York: Dover Publishing, 1978.

Comments


  • Grey Twitter Icon
Icelandic Research Fund.jpg

SIGN UP FOR UPDATES,

POSTS AND NEWS

© 2022 by Life of Paper. Proudly created with Wix.com

bottom of page