top of page

Af köttum og tilviljunum

  • Writer: Silvia Hufnagel
    Silvia Hufnagel
  • Feb 6
  • 2 min read

Silvia Hufnagel

16. desember 2019


Æðsta markmið flestra fræðimanna og vísindamanna er að gera miklar uppgötvanir. Leiðin að slíkum uppgötvunum getur verið margvísleg. Stundum eru þær rökrænar og óhjákvæmilegar niðurstöður vandvirknislegra rannsókna, en stundum koma þær til okkar óvænt eftir langar og nákvæmar lærdómsiðkanir þegar við erum að gera eitthvað allt annað (að fara í sturtu virðist klassískt dæmi) og stundum eru þær ánægjulegar tilviljanir.


Ein af ánægjulegustu tilviljununum í rannsóknarverkefni okkar Hringrás pappírs átti sér stað fyrr í ár þegar ég var í símanum og samstarfskona mín skutlaði til mín handbókinni um vatnsmerkjagagnagrunnin á netinu, Wasserzeichen-Informationssystem. Hún kastaði bókinni til mín kæruleysislega akkúrat þegar ég þurfti að skrifa niður dálítið. Ég greip minnisbók, lagði hana ofan á handbókina og punktaði niður einhver smáatriði. Eftir símtalið varð mér litið niður á minnisbókina og sjá: Þar var að finna sams konar vatnsmerki og finna má hluta af í elsta pappírsskjali Íslands (lesið um það hér!) Fram að þessu hafði ég talið að þetta vatnsmerki væri beyglaður toppurinn á Basel-stafnum, en í raun var þetta drekahali. Kápa handbókarinnar er skreytt með vatnsmerki drekans og minnisbókin mín lagðist yfir alla myndina nema halann, sem lítur alveg eins út og vatnsmerkið á íslenska pappírsskjalinu. Þökk sé þessari tilviljun með samstarfskonu minni gat ég greint þetta mikilvæga vatnsmerki rétt!



Happaköttur Pappírshringrásarinnar hámar í sig morgunmat rannsakenda í stað þess að stilla sér upp með bók (c) Silvia Hufnagel
Happaköttur Pappírshringrásarinnar hámar í sig morgunmat rannsakenda í stað þess að stilla sér upp með bók (c) Silvia Hufnagel

Önnur tilviljun átti sér stað föstudaginn þrettánda. Í síðustu viku eignaðist ég kött og hef því unnið heima, enda vildi ég ekki skilja vesalings litlu kisulóruna (jæja, hann er 11 ára högni) eina eftir heima. Á meðan ég gerði íbúðina mína íbúðarhæfa fyrir kött gróf ég upp bók sem ég hafði pantað fyrir greinaskrif en sem hafði borist of seint til þess að gagnast. Ég hafði gleymt bókinni, en þar sem skilafrestur fyrir endurskrif greinarinnar var nú að nálgast, datt mér í hug að lesa hana núna á heimaskrifstofunni. Ég fann ekki nýjar upplýsingar í bókinni sem nýttust í greininni minni, en þar sem kötturinn lúrði í kjöltu minni hélt ég áfram að lesa – og fann týnda hlekkinn í pappírsverslun Guðbrandar Þorlákssonar!


Með þessum ánægjulegu fréttum óskar Hringrás Pappírs ykkur gleðilegra jóla, endurnærandi hátíða - og farsæls nýs árs með mörgum uppgötvunum!


Comments


  • Grey Twitter Icon
Icelandic Research Fund.jpg

SIGN UP FOR UPDATES,

POSTS AND NEWS

© 2022 by Life of Paper. Proudly created with Wix.com

bottom of page