top of page

Heilsu- og öryggisógnir í pappírsmyllum

  • Writer: Silvia Hufnagel
    Silvia Hufnagel
  • Feb 6
  • 2 min read

15. maí 2024

Silvia Hufnagel


Í lok síðustu færslu vék ég að því hvernig gallar í pappír bera nöfn sem minna á mannslíkamann, kannski vegna þess að pappírsgerðin tók sinn toll af líkama þeirra sem unnu við hana. Og eins og Günter Bayerl hefur rannsakað var þessi líkamlega tollur ekki lítill.


Úr myndabanka Adobe
Úr myndabanka Adobe

Ógnir við líf og heilsu voru margar í pappírsmyllum. Mörg alvarleg og jafnvel banvæn slys urðu við mylluána, mylluhjólið og við stimplunarhamrana, en einnig við pressuna þar sem hin nýgerðu pappírsblöð voru pressuð. Það var kannski ekki mikil eldhætta í tengslum við suðu beina og annarra líkamshluta skepna til framleiðslu gelatíns til límburðar en eldhættan var sannarlega til staðar í haugum af rotnandi tuskum.


Stöðugur hávaði frá stimplunarhömrunum skerti heyrn allra sem unnu í myllunni. Kermennirnir, þeir sem dýfðu pappírsmótinu í kerið og formuðu pappírsörkina, þjáðust oft af alvarlegum húðkvillum vegna stöðugrar snertingar við vatnskennt maukið. Fólkið sem vann við tuskurnar, sérstaklega við að bleyta upp í þeim, þjáðist gjarnan af lungnakvillum. Og almennt ollu ryk og bakteríur í tuskunum alvarlegum heilsufarsógnum í myllunum. Tuskurnar voru sérstaklega hættulegar þegar þær voru keyptar af sjúkrahúsum á tímum stríðsátaka og farsótta. Eftir þrjátíu ára stríðið, til dæmis, voru tuskur ættaðar af sjúkrahúsum gjarnan smitberar.


Á þessum lýsingum að dæma virðast pappírsmyllurnar hafa verið hættulegir vinnustaðir og það er skelfilegt að horfast í augu við hve hættuleg pappírsgerð var á miðöldum og árnýöld. Efni næstu færslu verður á jákvæðari nótum, svo endilega missið ekki af því.



Frekari heimildir:


Günter Bayerl, Die Papiermühle: Vorindustrielle Papiermarcherei auf dem Gebiet des alten deutschen Reiches; Technologie, Arbeitsverhältnisse, Umwelt. 2 vols. Europäische Hochschulschriften Reihe III, 260. Frankfurt am Main: Lang, 1987.

Comments


  • Grey Twitter Icon
Icelandic Research Fund.jpg

SIGN UP FOR UPDATES,

POSTS AND NEWS

© 2022 by Life of Paper. Proudly created with Wix.com

bottom of page