top of page

Á bak við tjöldin

  • Writer: Silvia Hufnagel
    Silvia Hufnagel
  • Feb 6
  • 1 min read

Silvia Hufnagel 

16. febrúar 2024


Við vinnum nú að því að afrita vatnsmerki úr íslenskum pappírshandritum frá 17. öld ásamt samstarfsfólki okkar frá Landsbókasafni og fulltrúa frá Frauenhofer Institute for Factory Operation and Automation í Magdeburg.



A leaf of a paper manuscript backlit and set up for watermark imaging
Litrófsmyndun vatnsmerkja - Andreas Herzog frá Frauenhofer IFF (c) Sigurður Stefán Jónsson

Við nýtum okkur litrófsljósmyndun, aðferð þar sem barksýrublekið á síðunum hverfur við myndgerðina og truflar þannig ekki afritun vatnsmerkjanna. Barksýrublek er aðeins sýnilegt á bylgjulengdum upp að um 1200 nm. Myndavélin sem við notum fangar bylgjulengdir milli um 1000 og 2500 nm, svo það er aðeins á lægri bylgulengdunum sem blekið sést, en ekki á hinum hærri.


Myndavélinni er komið fyrir á skrifborði með stillanlegri hæð og færanlegur pallur flytur handritið framhjá myndavélinni. Handritasíðurnar eru lagðar í u-laga ramma úr pappír (sem er bæði sýrufrír og fellur að gæðastaðli skjalasafna) á bókbandsstöð sem komið er fyrir ofan á færanlega pallinum. Við festum handritasíðurnar og rammann með margvíslegum tólum sem nýtt eru við forvörslu handrita, til að mynda handritasnák sem tryggja bæði öryggi handritanna og gæði myndanna. Forvörðurinn okkar hannaði þessa snjöllu uppsetningu svo skönnunin yrði bæði áreynslulaus og árangursrík.






Eins og sjá má í þessu stutta myndbandi af prufuskönnun notum við bæði há- og lágtækni. Fylgist með svo þið missið ekki af góðum myndum - og niðurstöðum litrófsmyndananna!

Comments


  • Grey Twitter Icon
Icelandic Research Fund.jpg

SIGN UP FOR UPDATES,

POSTS AND NEWS

© 2022 by Life of Paper. Proudly created with Wix.com

bottom of page