top of page

Páskalömb og vatnsmerki

  • Writer: Silvia Hufnagel
    Silvia Hufnagel
  • Feb 6
  • 2 min read

Silvia Hufnagel

27. mars 2024


Nú líður að páskum. Ein af táknmyndum upprisu Krists er lamb Guðs, eða Agnus Dei á latínu. Myndhverfinguna um lamb sem tákn fyrir Krist er að finna á mörgum stöðum í Biblíunni, en best þekktur er sennilega textinn úr Jóhannesarguðspjalli: „En annars dags eftir sér Jóhannes Jesúm koma til sín og mælti: „Sjáið, þar er það lambið Guðs hvert eð ber heimsins syndir.““ (Jóhannesarguðspjall 1. 29., Guðbrandsbiblía). Myndin af Guðslambinu er sennilega best þekkt úr bænum í helgisiðum margra kristinna söfnuða (og sem hluti páskaskreytinga) en þessi mynd birtist líka sem vatnsmerki!


coat of arms with agnus dei/Lamb of God, with banderole "Arnstad" below, used in Erfurt, Germany, in 1613.
Wasserzeichen-Informationssystem DE4815-DNB-L-WZ-0000097 (Erfurt, 1613): Guðslambið á vatnsmerki

Vatnsmerkjasafn Gerhards Piccard hefur að geyma nærri 200 vatnsmerki sem sýna lamb Guðs. Elstu merkin eru talin frá því á fjórtándu öld og þau yngstu eru síðan á þeirri sautjándu. Það virðist sem þetta merki hafi fyrst verið notað á Ítalíu. Vatnsmerkin frá því á fjórtándu öld eru í pappír sem geymdur er í söfnum í Písa, Bolognia og Ravenna. Á öldunum tveimur sem eftir komu var vatnsmerkið líka notað á öðrum svæðum á Ítalíu, og í minna mæli í Norð-austur Frakklandi. Slík merki verða minna áberandi eftir 1560 og voru aðeins notuð nokkrum sinnum á sautjándu öld á svæðum sem nú tilheyra Þýskalandi.


Agnus Dei-vatnsmerkið hefur ýmsar birtingarmyndir. Þær eiga allar sameiginlegt lamb og fána; sumar hafa einnig kross á fánastönginni. Margar hafa hringlaga áletrun utan um myndina eða tvöfaldan hring, með eða án kross, kórónu eða einhverra bókstafa að auki. Lítill hluti merkjanna er í formi skjaldarmerkis með borða þar sem á stendur „Arnstadt“ en Arnstadt er smábær sunnan við Erfurt í Þýskalandi.



Agnus Dei Watermark: lamb with a flag, perhaps in an ornamented double frame
Handritið Thott 977 fol. í Konungsbókhlöðu í Kaupmannahöfn, bl. 366: Guðslambið á vatnsmerki. (c) Silvia Hufnagel

Eina gerð Agnus Dei-vatnsmerkisins er að finna í íslensku handriti sem nú er geymt í Konunglega danska bókasafninu í Kaupmannahöfn, Thott 977 fol., frá því um lok 17. aldar. Því miður er mjög erfitt að greina vatnsmerkið því blaðsíðurnar eru þaktar texta (og lýsingin á bókasafninu hentar illa til vatnsmerkjarannsókna, þótt hún sé prýðileg til lestrar á textanum). Þó getum við greint Agnus Dei og kross á fánastöng, hugsanlega í tvöföldum ramma með kórónu efst. Við skulum vona að við getum náð betri myndum af þessu merki einhvern tímann og greint vatnsmerkið til fulls!


Frekari heimildir:


Gerhard Piccard. Die Wasserzeichenkartei Piccard im Hauptstaatsarchiv Stuttgart. 25 vols. Stuttgart 1961-1997.

Comments


  • Grey Twitter Icon
Icelandic Research Fund.jpg

SIGN UP FOR UPDATES,

POSTS AND NEWS

© 2022 by Life of Paper. Proudly created with Wix.com

bottom of page