Pappírsslóðir Guðmundar Þorlákssonar biskups
- Silvia Hufnagel
- Feb 6
- 2 min read
Silvia Hufnagel
8. apríl, 2019

Á þessum degi fyrir 448 árum var Guðbrandur Þorláksson vígður til biskupsembættis á Hólum, nyrðri biskupsstóli Íslendinga. Á 56 ára biskupstíð sinni gaf hann út hundrað bækur, þar á meðal biblíuna. Það var í fyrsta sinn sem biblían var prentuð í heild sinni á íslensku og hafði útgáfan mikil áhrif á íslenskt mál og menningu.
Guðbrandsbiblía samanstendur af um 1250 blöðum í folio-stærð og hefur að geyma þrjár titilsíður auk 29 tréristna til myndskreytingar. Hún er sögð hafa verið prentuð í 500 eintökum. Með því að margfalda fjölda eintaka bóka með blöðum í hverju þeirra má sjá hve mikinn pappír þurfti í þetta metnaðarfulla prentverkefni: 625 x 500 = 312.500 blöð í folio-stærð, eða um það bil 625 rís (eitt rís jafngildir 500 blöðum í folio-stærð). Ekki lítið útgáfuafrek í landi þar sem engar eru pappírsmyllurnar!
Því miður höfum við engar upplýsingar um hvar Guðbrandur Þorláksson komst yfir pappírinn. Í bréfabók hans, AM 241 4to, sem var gefin út á árunum 1919-42, höfum við aðeins fundið fáeinar athugasemdir frá 1573 og 1576 um að hann hafi fengið pappír frá kaupmönnum frá Hamborg og að hann hafi beðið vin sinn Povl Madsen, biskup á Sjálandi, um pappír. En illu heilli er ekkert áþreifanlegt að finna í þessum skrifum Guðbrands.
Vatnsmerki geta varpað meira ljósi á uppruna pappírsins í Guðbrandsbiblíu. Við forgreiningu á sjö eintökum á Íslandi fann ég fimm ólík vatnsmerkjamótíf. Eitt þeirra fann ég í gagnagrunni um vatnsmerki en það sýnir stafina V og E samtvinnaða með kórónu yfir. Þetta merki var notað milli 1579 og 1602 í þýsku borgunum Rostock, Schwerin, Grabow, Güstrow og Neukloster en auk þess í Dorpat/Tartu í Eistlandi. Nú er hægt að bæta Hólum á Íslandi árið 1584 við þennan lista. Þýsku staðirnir eru allir nálægt hver öðrum og Rostock og Dorpat eru Hansaborgir. Hansakaupmenn stunduðu verslun á Íslandi líka.
Allar heimildir benda því til þess að Hansakaupmenn hafi séð Guðbrandi Þorlákssyni fyrir pappír. En fylgist með til að uppgötva fleiri krókaleiðir pappírsins!
Frekari upplýsingar:
Bréfabók Guðbrands byskups Þorlákssonar, edited by Páll Eggert Ólason and Jón Þorkelsson. Reykjavík : Hið íslenzka bókmenntafélag, 1919-1942.
Adolf E. Hofmeister, “Hansische Kaufleute auf Island im 15. und 16. Jahrhundert,“ in Kirche – Kaufmann – Kabeljau: 1000 Jahre Bremer Islandfahrt, edited by Adolf E. Hofmeister and Alfred Löhr, 33-46. Kleine Schriften des Staatsarchivs Bremen 30. Bremen: Staatsarchiv Bremen, 2000.





Comments