Pappírsmyllur og pappírssagnfræðingar
- Silvia Hufnagel
- Feb 6
- 2 min read
Silvia Hufnagel
18. september 2023
Sjöunda Alþjóðlega ráðstefnan um vatnsmerki í stafrænum gagnagrunnum var haldin í Veróna á Ítalíu í ár og á síðasta degi ráðstefnunnar héldum við í skoðunarferð um pappírsmyllu í Toscolano-Maderno, nærri Gardavatni. Pappírsmyllan er staðsett við mjóan dal þar sem á rennur niður í suðvesturhorn vatnsins. Í dalnum, sem kallaður er valle delle cartiere - pappírsmylludalur, var framleiddur pappír í fjölmörgum myllum frá síðari hluta fjórtándu aldar og allt til 1962. Gullöld dalsins var á stórveldistíma Feneyja frá 1426-1797. Til er skjal frá 1608, til dæmis, sem nefnir 160 mylluhjól og um 500 verkamenn.

Nú er starfrækt safn í gömlu myllunni Maina Inferiore þar sem framleiðsla á bæði handgerðum og vélframleiddum pappír er sýnd með upprunalegum og endurgerðum búnaði. Trogin þar sem niðurbrot trefjanna fór fram eru til að mynda upprunaleg, þar með talið leifar af götuðum flísum á botni þeirra. (Tuskur voru látnar liggja í kalkblönduðu vatni þangað til þær tóku að rotna og trefjarnar í þeim að brotna niður). Pappírsgerðarmaður sýnir hvernig handgerður pappír var búinn til og við fengum líka að prófa sjálf.
Á safninu er líka skjalasafn sem vakti sérstakan áhuga okkar pappírssagnfræðinganna, ekki síst því mikið af pappír frá þessu svæði var notað í skjölin. Í sumum skjölunum sáum við umbúðapappír sem notaður var í saurblöð og lagskipt pappaspjöld sem notuð voru sem bókarkápur. Vatnsmerki sem er einkennandi fyrir skrifpappír frá Toscolano-svæðinu er í líki ljóns. Vonandi verður vatnsmerkjunum sem fundust í skjalasafninu bætt í stafrænu gagnagrunnana fljótt!

Frekari heimildir:
Paper museum Toscolano: https://www.valledellecartiere.it/en/
Programme and abstracts of the 7th International Conference on Watermarks in Digital Collections: https://www.paperhistory.org/News/#bernstein7





Comments