top of page

Notkun og endurnotkun á pappír fyrir iðnbyltingu

  • Writer: Silvia Hufnagel
    Silvia Hufnagel
  • 4 hours ago
  • 3 min read
Poster to colloquium featuring the damaged spines of three books, making printed waste paper in red and black visible
Colloquium Use and Reuse of Paper in the Pre-Industrial World, 27-28 Aug 2024, UCC Cork (c) Silvia Hufnagel and Beeke Stegmann

19. september 2024


Frá 27.-28. ágúst komu saman fulltrúar tíu stofnana í sjö mismunandi löndum (og tveimur heimsálfum) í Cork á Írlandi til þess að kynna rannsóknir sínar á ráðstefnu um notkun og endurnotkun pappírs. 


Áherslan í fyrstu tveimur erindunum var á notkunpappírs á íslensku biskupsstólunum á 17. og 18. öld. í Skálholti var pappír til embættisnota nýttur hratt, þótt fyrir hafi komið að leifar úr gömlum pappírsbirgðum hafi dreifst. Á Hólum á Norðurlandi var mikið af pappír nýtt til prentunar og þar er jafnvel hægt að finna upplýsingar um verð pappírsins.


Í erindi sínu fjallaði Anna Reynolds um afgangspappír í ljóðlist og málaralist árnýaldar. Rómverska skáldið Catullus kvartaði reyndar þegar yfir því á sinni tíð að textinn dæi um leið og pappírinn – eða papýrusinn – sem geymdi hann væri tekinn og honum fleygt eða hann endurnýttur. Á kyrralífsmyndum niðurlensku málaranna má gjarnan koma auga á endurnýttan pappír, sem stundum hefur verið notaður til að prenta á hann almanök. Við sjáum hann líka notaðan sem kramarhús fyrir krydd, til að mynda pipar, eða sem krumpuð tóbakshorn. Þessi horn kunna að hafa verið notuð til þess að kveikja upp í pípum, grunar Önnu Reynolds.


Fyrsta ráðstefnudeginum lauk á skemmtilegri móttöku með austurrísku víni og frábærri írskri tónlist í lifandi flutningi á undan ráðstefnukvöldverði. 


Dagur tvö á ráðstefnunni hófst á umfjöllunum um endurnotkun á pappír í bókbandi. Jemima Bennet rannsakaði bókband í bókasafni í Oxford og komst að þeirri niðurstöðu að endurnýting pappírs í bókband hafi aukist talsvert eftir siðbótina. Fyrir hana var lítið sem ekkert um endurnotaðan pappír í bókbandi. Ef til vill var það breyting í bókbandsaðferð eða -stíl sem olli þessu. Samkvæmt Bennet var pappírinn endurnotaður frekar fljótt eftir framleiðslu. Giovanni Pagani kynnti tilviksrannsókn á vögguprenti sem var bundið inn í límpappaspjöld – sumar blaðsíðurnar sem voru notaðar í spjöldin eru ekki aðeins úr sömu útgáfu heldur eru þær afrit af sömu síðu. 


Í næsta fyrirlestri var fjallað um endurnýtíngu pappírs á Íslandi. Halldóra Kristinsdóttir og Rannver Hannesson fjölluðu um endurnýttan pappír í handritum og bókbandi í Landsbókasafni. Þau sýndu dæmi um prentaðar og handgerðar skreytingar, til að mynda bókahnúta, sem voru límdir inn í handrit, auk annarra dæma um endurnotaðan pappír, oft bréf, sem varð þannig aftur að efniviði til að skrifa á, stundum þannig að nýi textinn var skrifaður milli lína gamla textans og stundum hornrétt á þær. Yelena Sesselja Helgadóttir kynnti svipað tilvik, þar sem bréf og umslög voru oft notuð til að safna alþýðuljóðlist á 19. öld. Beeke Stegmann sagði frá endurnotkun Árna Magnússonar á pappír, en hann pakkaði um tíunda hluta apógrafa sinna (eða fornbréfauppskrifta) í áður notaðan pappír.


Í næsta erindi um endurnýtingu pappírsí Norður- og Suður-Ameríku kynnti Sebastian Kirsch dæmi um endurnýttan pappír í lútum frá 16. öld til 19. aldar. Þessi hljóðfæri eru sett saman úr nokkrum hlutum og þurfa styrkingar við á mótum þeirra, en stundum voru sprungur einnig lagfærðar með endurnýttum pappír sem á var að finna prentaðan eða handskrifaðan texta, teikningar eða nótnastrengi og nótur, en í öðrum tilvikum var um að ræða óskrifuð blöð. Amélie Junqua ræddi um notkun pappamassa í loftskreytingum 18. aldar, sem oft voru taldar úr gifsi áður en þær voru teknar niður og í ljós kom að þær voru léttar, ódýrar, og gerðar úr hinum sveigjanlega, ódýra og aðengilega efnivið afgangspappír. Anne Regourd rannsakaði 68 muni í papýrussafninu í Landsbókasafni Austurríkis sem höfðu að geyma endurnýttan pappír – þar með talin verslunarbréf og bókhaldsskýrslur sem notaðar voru sem fóður í föt, söðla og jafnvel í bútasaum.


Allir fyrirlestrarnir á ráðstefnunni voru afar fróðlegir og áhugaverðir, með áherslu á notkun og endurnotkun pappírs bæði til ritunar og annarra nota í veröld árnýaldar. Ég lærði margt og öðlaðist innsýn inn í margt sem var mér hulið í ýmsum menningarheimum. Ráðstefnan veitti mér mikinn innblástur. Ég þakka öllum sem tóku þátt í henni!


17 academics smile into the camera
Gestir og fræðimenn sem kynntu erindi við ráðstefnuna (c) Silvia Hufnagel

Við ætlum að gefa út erindi ráðstefnunnar og vonumst til þess að gera það á næstu tveimur árum. Fylgist með!


header.all-comments


  • Grey Twitter Icon
Icelandic Research Fund.jpg

SIGN UP FOR UPDATES,

POSTS AND NEWS

© 2022 by Life of Paper. Proudly created with Wix.com

bottom of page