top of page

Magn og gæði pappírs

  • Writer: Silvia Hufnagel
    Silvia Hufnagel
  • Feb 6
  • 2 min read

Silvia Hufnagel

15. júlí 209


Við byrjum á vondu fréttunum: Við höfum sáralitlar upplýsingar um pappírsverslun. En þó fann ég handrit sem sem geymir örlitlar vísbendingar um pappírsverslun á Íslandi! Handritið Lbs 85 á Landsbókasafni í Reykjavík er raunar algjör fjársjóður því það geymir bókhald Fyrsta íslenska verslunarfélagsins frá 1635, en það var danskt verslunarfélag sem stofnað var til þess að eiga viðskipti á Íslandi.


Lbs 85 fol, bls. 4. Listi af innfluttum pappír, flokkuðum eftir gæðum (c) Silvia Hufnagel
Lbs 85 fol, bls. 4. Listi af innfluttum pappír, flokkuðum eftir gæðum (c) Silvia Hufnagel

Í handritinu kemur fram að pappír í fjórum ólíkum gæðaflokkum var fluttur inn: Fínn, meðalgóður, almennur og prentpappír. Listanum er skipt upp svona:


26 rís af fínum pappír fyrir 107 dali

18 rís af meðalgóðum pappír fyrir um 48 dali

27 rís af almennum pappír fyrir um 40 dali

30 rís af prentpappír fyrir um 26 dali


Öll 30 rísin af prentpappír voru send til hafnar í Hofsósi, en það var sú höfn sem næst var biskupsstólnum að Hólum, þar sem eina prentverk landsins var staðsett. Hvað afganginn varðar fengu flestar kauphafnir landsins eitt eða tvö rís úr hverjum gæðaflokki, en Eyrarbakki þrjú úr hverjum. Því er enn ósvarað hvers vegna Eyrarbakki skar sig úr með þessum hætti. 



Til hliðar við hina löglegu verslun blómstraði ólögleg verslun með pappír. Árið 1636 gerði sýslumaðurinn á Snæfellsnesi upptækt góss Jóhanns Marcusz Mom, hollensks fálkaveiðimanns. Meðal þeirra vara sem skráðar voru eru fjögur kver af grófum pappír fyrir átta skildinga hvert.


Við vitum enn ekki með nokkurri vissu hvar pappír sem fluttur var inn til Íslands var framleiddur. Forkönnun á vatnsmerkjum bendir til þess að pappírinn hafi komið frá Þýskalandi og Hollandi, og undir lok sautjándu aldar einnig frá Danmörku. Fylgist með til að fá að heyra af nákvæmari niðurstöðum!


Frekari upplýsingar:


Reykjavík, National and University Library of Iceland, Lbs 85 fol.


Pétur G. Kristjánsson: „Íslandssiglingar Englendinga og launverslun á 17. öld.“ Sagnir 20 (1999): 22-28.

Comments


  • Grey Twitter Icon
Icelandic Research Fund.jpg

SIGN UP FOR UPDATES,

POSTS AND NEWS

© 2022 by Life of Paper. Proudly created with Wix.com

bottom of page