Litrófsmyndun á vatnsmerkjum
- Silvia Hufnagel
- Feb 6
- 2 min read
Silvia Hufnagel
19. ágúst 2019
Myndun vatnsmerkja er mikilvægur þáttur í rannsókninni Hringrás pappírs, þar sem hún er grundvöllur rannsóknar okkar á pappírsverslun auk þess að gefa vísbendingar um uppruna pappírsins sem notaður var á Íslandi. Til eru nokkrar aðferðir til að ná vatnsmerkjunum á mynd, svo sem að gera þrykkimynd, að gera eftirrit, og að gegnumlýsa með betageislum.
Í Hringrás pappírs notuðum við litrófsmyndavél og varmagjafa, en hvort tveggja er frá Fraunhofer Institute for Factory Operation and Automation IFF í Magdeburg í Þýskalandi.
Í innrauðri litrófsljósmyndatækni er vægum varmagjafa, svo sem hitaðri glerplötu eða sérstakri ljósaperu, komið fyrir á bak við pappírinn og mynd er tekin af varmanum sem berst í gegnum hann. Hitinn dreifist á mismunandi hátt á leið sinni gegnum pappírinn: Hann ferðast hraðar í gegn þar sem pappírinn er þynnri, þ.e. þar sem vatnsmerkið er og net- og keðjulínurnar en hægar þar sem pappírinn er þykkari. Einnig verður barksýrublek ósýnilegt í innrauðu ljósi með bylgjulengd yfir 1000 nm, svo skriftin á pappírnum er ekki fyrir vatnsmerkinu. Þannig verður allt sýnilegt, bæði vatnsmerkið og línurnar eftir vírana (bæði net og keðjur).

Í verkefninu okkar notuðum við litrófsmyndavél sem festir á mynd ljós af bylgjulengd á bilinu frá 1000-2500 nm. Hún hefur afar þrönga bandvídd og skannar á hverjum 6 nm milli 967 nm og 2.499 nm, svo við fengum 256 skannaðar myndir af hverju vatnsmerki. Þetta var mjög spennandi – að sjá fyrst handritið fyrir framan sig allt útskrifað í bleki svo vatnsmerkin voru vart sjáanleg, hvað þá að hægt væri að greina hvaða merki væri um að ræða, en fylgjast svo með hve skýr og auðsjáanleg vatnsmerkin urðu á skjá myndavélarinnar.
Við náðum að taka nærri 630 myndir af fleiri en 480 vatnsmerkjum úr íslenskum sextándu og sautjándu aldar skjölum og handritum. Á næstu mánuðum munum við bæta þeim við vatnsmerkjagagnagrunn á netinu, Wasserzeichen-Informationssystem (www.wasserzeichen-online.de), svo fylgist endilega með.
RÚV fannst vatnsmerkjamyndun okkar líka heillandi og fréttamenn þaðan komu til þess að taka viðtöl og myndbönd af okkur. Við látum vita þegar það fer í sjónvarpið.
Það var Gerda Henkel Foundation sem styrkti okkur af mikilli rausn til þess að kosta litrófsmyndunina.

Frekari heimildir:
https://www.iff.fraunhofer.de www.gerda-henkel-stiftung.de
Meinlschmidt, Peter, Carmen Kämmerer, and Volker Märgner (2010). “Thermographie – ein neuartiges Verfahren zur exakten Abnahme, Identifizierung und digitalen Archivierung von Wasserzeichen in mittelalterlichen und frühneuzeitlichen Papierhandschriften, -zeichnungen und –drucken.” In Kodikologie und Paläographie im digitalen Zeitalter 2, ed. by Franz Fischer, Christiane Fritze and Georg Vogeler. Schriften des Instituts für Dokumentologie und Editorik 3. Norderstedt: Books on Demand, 209–226.






Comments