Innsigli úr pappír
- Silvia Hufnagel
- Feb 6
- 2 min read
Silvia Hufnagel
4. nóvember 2022
Velkomin aftur á blogg Hringrásar pappírs á Íslandi! Hluta þessa sumars var varið í handritageymslum á Íslandi og nú kynnum við spennandi uppgötvanir úr þeim ranni, meðal annars elsta þekkta dæmið um notkun pappírs á Íslandi – innsigli úr pappír frá árinu 1420.

Pappírsinnsigli er búið til með því að láta dálítinn vaxdropa drjúpa á bréf eða skjal og leggja raka pappírsræmu ofan á áður en innsiglismótið er svo lagt ofan á hana, svo pappírinn tekur á sig innsiglismyndina. Stundum er brotið neðst á spássíu bréfsins eða skjalsins notað í stað pappírsræmu. Jafnvel þótt vaxið molni burt heldur pappírinn mynd sinni. Það er erfitt að ákvarða hvenær pappírsinnsigli ruddu sér til rúms en líklegt má telja að það hafi verið á síðari hluta fjórtándu aldar og á þeirri fimmtándu.
Samkvæmt grein í Kulturhistorisk leksikon for nordisk middelalder, 13. bindi, eru elstu pappírsinnsiglin í Svíþjóð á bréfi sem Albert Svíakonungur skrifaði og er dagsett 5. september 1364, en fleiri slík innsigli eru til frá því upp úr 1380. Elsta pappírsinnsiglið í Finnlandi er pressað á skjal frá 1460. Í Danmörku var það fyrst konungsfjölskyldan og aðrir aðalsmenn sem notuðu pappírsinnsigli, til að mynda Kristína drottning 1485. Í Noregi pressuðu Hansakaupmenn í Björgvin innsigli á pappír á skjali dagsettu 7. ágúst 1514 og aðalsmaðurinn og stjórnmálamaðurinn Olav Galle í Tönsberg skildi eftir eitt slíkt á skjali dagsettu 1. ágúst 1515.
Á Íslandi má finna pappírsinnsigli á bréfi sem Jón Tófason (biskup á Hólum frá 1411-1423) og aðrir leiðtogar landsins sendu Eiríki konungi af Pommern frá Alþingi, en það er dagsett 1. júlí 1420. Ekki aðeins er þetta eitt af elstu pappírsinnsiglunum sem þekkt eru, heldur felur það í sér fyrsta þekkta dæmið um notkun pappírs á Íslandi, eins og Stefán Karlsson benti á í riti sínu Islandske originaldiplomer indtil 1540. Hið stóra pappírsinnsigli biskups losnaði af bréfinu en er nú í AM 217 8vo fol. 69r, en fimm minni innsigli eru enn föst við bréfið.
Þótt pappírsinnsigli hafi verið frekar algeng og séu vel þekkt meðal sagnfræðinga virðist enginn hafa gert skrá yfir þau. Þekkið þið til pappírsinnsigla eða rannsókna á þeim?
Frekari heimildir:
"Papirsegl", Kulturhistorisk leksikon for nordisk middelalder, vol. 13, 110-113.
Stefán Karlsson, ed., Islandske originaldiplomer indtil 1540: Tekst. Editiones Arnamagæanæ A 7. Copenhagen, 1963.





Comments