Heinrich Erkes - 1. hluti
- Silvia Hufnagel
- Feb 6
- 1 min read
31. júlí, 2018
Regina Jucknies
Í dag er umfjöllunarefni okkar einn af þeim þremur söfnurum íslenskra bóka og handrita sem rannsóknarverkefni okkar nær til. Það er óhætt að lofa því að allir þrír voru einstakir karakterar.
Heinrich Erkes (1864-1932) var kaupmaður frá Köln sem fékk áhuga á Íslandi um aldamótin 1900. Hann hóf íslenskunám og sóttist það afar hratt. Raunar varð hann svo góður í íslensku að hann var fær um að gefa út fyrstu þýsku kennslubókina í nútímaíslensku. Honum auðnaðist að heimsækja Ísland nokkrum sinnum þar sem hann eignaðist fjölda vina og ferðaðist víða um land.
Þótt hann hafi ekki verið menntaður jarðfræðingur birti hann lærðar greinar um jarðfræði og varð svo virtur í faginu að hann varð bréfameðlimur Hins konunglega jarðfræðafélags í Lundúnum (Royal Geographical Society). Hann var einnig stofnfélagi í Hinu þýska Íslandsvinafélagi (Gesellschaft der Freunde Islands). Enn fremur voru íslenskar bókmenntir honum mikil ástríða og því tók hann að safna íslenskum bókum, fornum og nýjum. Meira um það síðar.
Frekari upplýsingar:
Erkes, Heinrich: Kurzer deutsch-neuisländischer Sprachführer. Dortmund: Ruhfus, 1906 (read it here: https://archive.org/details/kurzerdeutschne00erkegoog).
For a list of all the various publications by Heinrich Erkes, see https://www.ub.uni-koeln.de/e7902/e13460/e13736/e24807/erkesbibliographie_ger.pdf
Jucknies, Regina. Heinrich Erkes (1864-1932): Kölner Kaufmann, Kenner Islands und kluger Bibliothekar. Vorträge in der Universitäts- und Stadtbibliothek Köln 1. Cologne: Universitäts- und Stadtbibliothek, 2010.






Comments