Endurvinnsla pappírs snemma á 18. öld
- Silvia Hufnagel
- Feb 6
- 2 min read
Silvia Hufnagel
17. nóvember 2023
Fyrir nokkrum dögum, eða 13. nóvember, fögnuðum við 360 ára afmæli Árna Magnússonar, handritasafnarans fræga. Við höfum áður fjallað um notkun hans og endurnotkun á pappír í umbúðir um fornbréfauppskriftir og í minnisseðla og nú bætum við við öðru áhugaverðu dæmi um endurnýtingu Árna á pappír við seðlagerð sína.
AM 388 fol geymir skjöl frá 1700-1705 sem snúa að Vestmannaeyjum. Handritið hefur einnig að geyma minnisseðla sem Árni skrifaði. Þótt margir þessara seðla hafi verið auðir áður en Árni skrifaði á þá eru sumir þeirra úr endurnotuðum pappír, til dæmis uppskornum bréfum, og geyma þannig eldri texta. Á því sem nú er síða 22 r í AM 388 fol. er hægt að lessa ávarp til Árna á frönsku: „Monsieur | Monsieur Arne […]| Secretaire de l[…]| professeur de […] | a | Copenhague“ og á verso-hliðinni er að finna athugasemd með ártalinu 1701, skrifaða með hendi Árna. Á því ári var Árni skipaður prófessor í heimspeki og danskri fornfræði við Háskólann í Kaupmannahöfn, svo hann hefur væntanlega endurnýtt bréfið snarlega.
Tveir seðlar á síðu 15 og 71 eru gerðir úr sama blaðinu. Þegar við leggjum seðlana saman stafrænt getum við lesið um athugun á hleðslu nærri bænum Kornhóli í Vestmannaeyjum þann 4. maí 1704. EFtir að Árni hafði skorið síðuna niður í tvo seðla skrifaði hann stutta athugasemd um tíund á annan seðilinn og um „karða“ á hinn (en karði er sverðtegund). Á seðlinum á síðu 69 v. er aftur að finna athugasemdir um karða, svo ætla má að varnarmál hafi verið í brennidepli um 1700.

Pappírsseðlarnir á síðum 28 og 125 koma einnig upphaflega úr sama blaði og hafa að geyma kort af svæðinu milli Mýrdals og Núpsvatna (ritað „gnups vötn“) um 20 km vestur af Skaftafelli, sem Árni hefur teiknað.

Eins og þið vitið kannski varði Árni árunum 1702-4 að mestu á Íslandi við gerð Jarðabókarinnar ásamt Páli Vídalín. Það er líklegt að þessi tvö skornu pappírsblöð með upplýsingunum um hleðsluna og kortið af jörðinni á Suðurlandi séu frá þeim tíma. Ef hann eignaðist skjölin sem nú bera safnmarkið AM 388 fol. á meðan á jarðabókargerðinni á Íslandi stóð getur verið að hann hafi endurnotað pappírinn í seðla nánast um leið. Með öðrum orðum: Pappírinn var endurnotaður fljótt í minnisseðlana í AM 388 fol.
Frekari heimildir:
Beeke Stegmann, “Paper Use and Reuse in Early 18th-Century Iceland and Denmark”, in: Paper Stories – Paper and Book History in Early Modern Europe, edited by Silvia Hufnagel, Þórunn Sigurðardóttir and Davíð Ólafsson, 283-304. Materiale Textkulturen 38. Berlin: De Gruyter, 2023. https://www.degruyter.com/document/doi/10.1515/9783111162768-013/html
Már Jónsson, Arnas Magnæus philologus (1663-1730). The Viking Collection 20. Odense: Odense University Press, 2012.





Comments