Að sýna efnislega uppbyggingu handrita: VisColl
- Silvia Hufnagel
- Feb 6
- 2 min read
Lotte Devoldere
17 apríl 2023
Í verkefni okkar um Hringrás pappírs notum við VCEditor, hugbúnað sem gerir okkur kleift að sýna upbbyggingu ákveðinna handrita. Þessi hugbúnaður er hluti af VisColl-verkefninu (Collation Visualisation), kerfi sem var þróað við Schoenberg-stofnunina í handritafræðum. Með VCEditor er hægt að útbúa þægilega, sjónræna framsetningu á upplýsingum um síðuröðun bóka sem annars væru settar fram með formúlum, ásamt öðrum upplýsingum sem geta gagnast við greiningu handrita.
Þetta er afar handhægt verkfæri sem hjálpar okkur að sýna eiginleika sem vanalega er aðeins hægt að sjá með því að skoða handritið sjálft með eigin augum, og eru þannig óaðgengilegir þeim sem skoða stafrænar útgáfur. Þetta á ekki aðeins við byggingu handritana heldur hvaða viðbótarupplýsingar sem er, því VCEditor býr yfir fjölda verkfæra. Það er til að mynda hægt að skrá hvort blaðsíður eru upprunalegar, viðbætur eða hvort þær vantar, merkja stúfa og með hvaða margvíslegu aðferðum síðum hefur verið bætt við handritið (hvort þær hafa verið límdar við, bætt við sem sérstöku tvinni, stungið inn og svo framvegis). Einnig má setja inn síðunúmer, tilgreina efnivið síðnanna og líka skrá á hvorri hliðinni síðan liggur (á net- eða filthliðinni), auk þess að bæta við öðrum atriðum. Þetta síðasta opnar fjölda möguleika, því það leyfir okkur að skrá hvað sem við viljum, svo sem upplýsingar um vatnsmerki, upplýsingar um textann, lagfæringar á tvinnum og fleira. Það er líka söguleiki á að bæta við stafrænum myndum af handritunum.
Allt þetta gefur möguleka á skýrri myndrænni framsetningu sem hentar hinum sérstöku kröfum okkar rannsóknar – en er um leið afar notendavænt!

Frekari upplýsingar um VisColl-kerfið má finna á viscoll.org. Vefsíðan hefur að geyma leiðbeiningar um hvernig nota má VCEditor-forritið, auk fjölda upptakna og námskeiða sem Dot Porter, sem er meðal stjórnenda og forritara VisColl, hefur umsjón með. Þannig geta allir nýtt sér þetta þægilega verkfæri til þess að gera upplýsingar um handrit sýnilegar!





Comments