Annasamir tímar með FT-IR litrófsgreiningu
- Silvia Hufnagel
- Feb 3
- 2 min read
Updated: Feb 6
Silvia Hufnagel
16. apríl 2025
Við höfum ekki haft mjög hátt síðustu mánuði því við höfum verið alveg sérlega önnum kafnar. En nú er allt að róast og við getum kynnt dálítið af nýlegum niðurstöðum okkar.
Í febrúar gerðum við mælingar með FT-IR litrófsgreiningu. FT-IR litrófsgreining er aðferð sem mælir hreyfingu sameinda sem ákveðið magn orku kallar fram. Útkoman er róf bylgna en með mælingum á því er hægt að komast að efnasamsetningu og þar með hrörnun sameinda efnisins, sem gefur upplýsingar um aldur þess. Þessari aðferð hefur þegar verið beitt innan fornleifafræði við aldursgreiningu á lífrænum efnum, svo sem timbri, hálmi og nýlega bæði tusku- og viðarkvoðupappír.
Til eru margar aðferðir við IR (innrauða) litrófsgreiningu, og ein þeirra er MIR (mið-innrauð) litrófsgreining á yfirborðsspeglun, sem er snertilaus aðferð sem mælir frekar stórt svæði en með frekar lítilli nákvæmni. Önnur nefnist deyfð heildarspeglun (e. Attenuated Total Reflection), sem er gerð með því að þrýsta kristal mjúklega upp að yfirborði sýnisins. Þannig næst meiri nákvæmni en vegna þrýstingsins sem sýnið er beitt er þessi tækni varasöm fyrir afar viðkvæm sýni. Í verkefninu okkar, Æviferli pappírs, notuðum við MIR-litrófsgreiningu.
Í fyrsta þrepi rannsóknarinnar gerðum við FT-IR litrófsgreiningu á efni þar sem aldurinn lá þegar fyrir, þ.e. prentuðum bókum og tímasettum handritum. Niðurstöðurnar voru notaðar til þess að búa til líkan sem nýtist við að aldursgreina efni sem ekki er þegar tímasett. Í öðru þrepi rannsóknarinnar gerðum við FT-IR litrófsgreiningu á óaldursgreindum handritum og minni bútum af endurnotuðum pappír án vatnsmerkja – til að mynda á minnisseðlum og umbúðapappír utan um fornbréf. Því Árni Magnússon endurnýtti gjarnan pappír í þessa seðla og umbúðir.

Fyrsta útgáfan af líkaninu spáði fyrir um aldur pappírsins sem notaður var á Íslandi á bili sem spannar 36 ár í hvora átt, þ.e. gaf okkur 72 ára tímabil. Með notkun annars algríms fór bilið niður í 21 ár í hvora átt, sem er mikil framför. En þótt þessar niðurstöður séu frábært fyrsta skref og prófi aðferðina á árangursríkan hátt eru þær ekki alveg fullnægjandi, þar sem aðferðir hugvísindanna, svo sem fornskriftarfræði, geta gefið svipaðar og stundum enn nákvæmari aldursgreiningar. Við vonum þó að með meiri tölfræðilegri greiningu verði líkanið fært um að gefa enn betri niðurstöður.





Comments