top of page

Aftur á skólabekk: Pappírsaðföng á Íslandi árnýaldar

  • Writer: Silvia Hufnagel
    Silvia Hufnagel
  • Feb 6
  • 2 min read

Silvia Hufnagel

13. september 2019


Í ágúst og byrjun september byrja skólarnir aftur og við fáum yfir okkur flóðbylgju auglýsinga fyrir skólavörur. Við þurfum aðeins að taka innkaupalistann sem skólinn sendir okkur í upphafi skólaársins og skreppa með hann í eina af búðunum eða stórmörkuðunum í nágrenninu til að kaupa það sem þarf. En á Íslandi árnýaldar var annað uppi á teningnum.


Í tengslum við konungstilskipun um siðaskiptin skipaði höfuðsmaðurinn á Íslandi, Poul Huitfeldt (um 1520-92), eða Páll Hvítfeldur eins og Íslendingar nefndu hann, svo fyrir árið 1552 að biskupar yrðu að sjá þurfandi skólapiltum fyrir bókum og pappír. Þótt ekki sé tekið fram hvar aðrir en hinir þurfandi ættu að komast yfir pappír, höfum við undir höndum viðbótarupplýsingar um pappírssölu sem tengist skólunum tveimur að Hólum á norðurlandi og Skálholti fyrir sunnan á sautjándu öld. 


Í bréfi frá 1666 bendir Gísli Þorláksson Hólabiskup (1631-84) á að foreldrar verði að tryggja börnum sínum pappír. Þetta var á tíma einokunarverslunar á Íslandi og fóru kaupmenn frá Kaupmannahöfn með verslun hérlendis. Um tuttugu kauphafnir voru staðsettar víðs vegar um landið, og var Hofsós sú sem næst var Hólum. Við gerum ráð fyrir að foreldrar hafi getað fengið pappír í þessum kauphöfnum (sjá blog post from July about the import of paper in 1635). Gísli biskup Þorláksson hafði sennilega sín eigin alþjóðlegu verslunartengsl og hlýtur að hafa getað fengið pappír til eigin þarfa í gegnum þau tengsl. 



atnsmerki í á síðu fol 87v í handritinu AM 268 fol. (c) Silvia Hufnagel
atnsmerki í á síðu fol 87v í handritinu AM 268 fol. (c) Silvia Hufnagel



Í Skálholti varð athyglisverður atburður um jólaleytið 1652 þegar Jón Pálsson stal pappír og seldi skólafélögum sínum. Við höfum undir höndum lista með nöfnum þessara tuttugu og þriggja skólapilta, auk þess magns af pappír sem hver og einn keypti af Jóni. Til þess að fræðast meira um þetta mál skuluð þið koma á ráðstefnu okkar, Pappírssögur, 7-8 maí 2020 í Reykjavík.


Við þökkum Hjalta Snæ Ægissyni og Gunnari Marel Hinrikssyni fyrir að benda okkur á pappírsþjófnaðinn í Skálholti. 


Frekari heimildir:


Vol. 12 of Diplomatarium Islandicum. Íslensk fornbréfasafn, ed. Páll Eggert Ólason. Reykjavík: Félagsprentsmiðja, 1923–32.


Reykjavík, The Árni Magnússon Instititute for Icelandic Studies, AM 268 fol.


Gísli Þorláksson: Prestastefnudómar og bréfabók Gísla biskups Þorlákssonar, ed. Bjarni Vilhjálmsson and Júníus Kristinsson. Reykjavík : Þjóðskjalasafn Íslands, 1983.

Comments


  • Grey Twitter Icon
Icelandic Research Fund.jpg

SIGN UP FOR UPDATES,

POSTS AND NEWS

© 2022 by Life of Paper. Proudly created with Wix.com

bottom of page